Hreinir gluggar eru
okkar fag

Um okkur

Abgluggar varð til af einni ástæðu, sumarið 2024 fékk ég, Bjarki, enga vinnu. Í stað þess að bíða, hringdi ég í félaga minn Aleksander og við keyptum búnað í Byko fyrir 12 þúsund krónur. Fyrsta verkið okkar endaði með því að gluggarnir heima hjá mér urðu skítugri en áður.

Við gáfumst ekki upp. Við lærðum fagið almennilega, fórum til Danmerkur til að finna réttan búnað, og bönkuðum upp á í nánast hverju hverfi Reykjavíkur til að finna okkar fyrstu viðskiptavini.

Í dag höfum við þjónustað yfir 300 heimili og fyrirtæki, og margir þeirra hafa leitað aftur til okkar. Það er engin tilviljun, við setjum kúnnann alltaf í fyrsta sæti og gætum þess að allar þarfir séu uppfylltar þegar kemur að gluggunum þínum.

Mynd

Okkar verk

Við þjónustum heimili, fyrirtæki og fjölbýlishús um allt höfuðborgarsvæðið. Á lægri gluggum notum við hefðbundinn kúst og sköfu, en á hærri gluggum kúst sem tengist hreinsuðu vatni gegnum síu. Hann skrúbbar rammann jafnt og glerið, sem heldur glugganum skínandi vikum saman eftir þrif.

Tökum bæði stök verk og reglubundna samninga, hvort sem það er tvisvar á ári eða mánaðarlega. Vönduð vinnubrögð í hvert sinn og skiljum eftir skínandi hreina glugga.